Íslenska 4
From
17.01.2023 17:00
until
23.03.2023 19:00
Categories: Icelandic / Íslenska fyrir útlendinga
Áfanginn miðast við þarfir þeirra sem hafa nokkuð góða undirstöðu í tungumálinu. Fjallað er um þætti sem tengjast daglegu lífi og þörfum fjölskyldu. Áhersla er lögð á að efla orðskilning nemenda tengdan ýmsum störfum, samskiptum á vinnustað, atvinnuumsóknum, atvinnuviðtölum og launaseðlum. Áfram er lögð áhersla á íslenskt samfélag og fjölmiðla með það fyrir augum að auka færni nemenda í tungumálinu og efla sjálfstraust þeirra og samfélagslega vitund. Fjallað um mannleg samskipti, virðingu og umgengni. Íslensk landafræði lítillega kynnt og nemendur segja frá reynslu sinni af ferðalögum um Ísland og önnur lönd. Fjölbreyttum kennsluaðferðum í tungumálakennslu beitt. Þjálfun í ritfærni eykst. Leitast er við að gera verkefnin þannig úr garði að þau reyni á hæfni nemandans við raunverulegar aðstæður og þjálfi nemandann í að geta haldið uppi samræðum og gert sig sem best skiljanlega á íslensku.
Efnisatriði
Dæmi: sjónvarp, dagblöð, Internetið, útvarp, myndir, skóladagar, starfsdagar, viðeigandi klæðnaður, veikindi, viðtalstími, hegðun, heimanám, próf, skólabækur og áhöld, foreldrafundir, skólaskemmtanir, öryggisatriði, skattur, skattaskýrsla, orlof, kaup, atvinnuviðtal, ferilskrá, launaseðill, stéttarfélag, persónuafsláttur, ferðalög, landafræði.

Áfanginn samsvarar seinni hluta A2 samkvæmt viðmiðun evrópska tungumálarammans (Common European Framework of Reference for Languages).
Farið er fram á að nemendur stundi heimanám á meðan á námskeiði stendur.
- Kennari: Steinar Tómasson
- Lengd: 40 klukkustundir (60 kest.)
- Dagar: Þriðjudagar og fimmtudagar
- Verð: 48.500 isl kr. Greitt er með korti, debit eða k eða með Netgíró. Athugið að fræðslusjóðir stéttarfélaga styrkja þátttakendur.
Reglur um innheimtu námskeiðsgjalda
Course Fee Policy
Regulamin opłat za kurs
Námið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu