Þriðjudagur, 08 Júní 2010 11:47
Starfsemi Fræðslunetsins á vorönn hefur gengið vel og hafa verið haldin bæði löng og stutt námskeið af ýmsum toga fyrir breiðan hóp viðskiptavina. Alls voru haldin 42 námskeið á vorönn og voru nemendur á þessum námskeiðum alls 472 eða ríflega 11 að meðaltali. Nemendastundir eru 18.008 en það er kennslustundafjöldi margfaldaður með nemendafjölda. Kennarastundir voru 1481. Miðað við vorönn 2009 er um talsverða aukningu á starfseminni að ræða og eru nemendur nú tæplega 100 fleiri en á sama tíma í fyrra. Mesta breytingin er þó sú að nú eru kennd fleiri námskeið sem eru mun lengri en áður gerðist. Sem dæmi má nefna að sl. vetur vour þrjú námskeið kennd sem voru 300 stunda löng en það eru lengstu námskeið sem Fræðslunetið hefur haldið til þessa.