Nám til 10 eininga á meistarastigi mun standa framhaldsskólakennurum til boða í þriðja sinn skólaárið 2010 – 2011. Fyrirkomulag námsins mun verða með svipuðu sniði og áður hefur verið. Námið er skipulagt fyrir starfandi framhaldsskólakennara með þeirra þarfir að leiðarljósi. Kennt verður í nokkrum lotum og mun námið ná yfir tvö misseri. Hafþór Guðjónsson dósent er umsjónarmaður námskeiðsins, sem haldið er af menntavísindasviði HÍ að undirlagi samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara. Viðfangsefni námskeiðsins er starfendarannsóknir í skólum.
Starfendarannsókn er rannsókn sem starfsmaður gerir á eigin starfi í því augamiði að skilja það betur og þróa til betri vegar. Grunnhugmyndin er að læra í starfi: taka til athugunar reynslu sem maður verður fyrir og þá með þeim ásetningi að átta sig betur á því sem maður er að gera og hvaða afleiðingar gerðir manns hafa.
Námskeiðið er ætlað starfandi framhaldsskólakennurum úr öllum kennslugreinum sem lokið hafa háskólaprófi og kennsluréttindanámi. Æskilegt er að námið sæki fleiri en einn kennari í hverjum skóla.
Þátttaka í námskeiðinu er háð samráði og samþykki skólameistara þar sem gera má ráð fyrir einhverri röskun á kennslu þátttakenda. Tekið skal fram að ekki mun verða um að ræða styrkgreiðslu frá samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldskóla vegna þessa náms en þátttakendur geta sótt um styrk í vísindasjóð KÍ.
Umsóknarfrestur er til 15. júní og skal senda umsóknirnar í tölvupósti til Kristínar Jónsdóttur hjá Endurmenntun HÍ:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Þar þurfa að koma fram upplýsingar um háskólapróf, kennsluréttindanám, kennslugrein/greinar, skóla sem starfað er í, ásamt almennum upplýsingum um umsækjanda. Afrit af háskólaprófi skal senda annað hvort rafrænt í tölvupósti á ofangreint tölvupóstfang eða í hefðbundnum pósti til: Kristínar Jónsdóttur, Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
Samstarfsnefnd um endurmenntun mun velja úr umsóknum en námskeiðið er boðið fram með fyrirvara um næga þátttöku. Sjá nánar









