Þó nú sé loks vor í lofti erum við hér á Fræðslunetinu aðallega að hugsa um næstu haustönn. Það verða mörg ný námskeið í boði næsta haust. Fyrst ber að nefna að í lok ágúst höfum við skipulagt
námskeið í nýtingu og tínslu íslenskra villisveppa. Námskeiðið verður í tvö skipti og í seinna skiptið verður farið í skógarferð þar sem þátttakendum gefst færi á að taka fjölskylduna með í sveppatínsluferð undir leiðsögn. Mörg handverksnámskeið er fyrirhugað að halda, s.s.
leðurtöskugerð, mósaiknámskeið, keramiknámskeið og framhaldssnámskeið í teikningu. Námskeiðin birtast hér á vefnum jafnóðum og búið er að skipuleggja þau.
Kíkið á það sem þegar er komið hér. Þá er í bígerð að bjóða kvöldskóla fyrir fullorðna sem heitir Grunnmenntaskólinn. Hann er hugsaður fyrir þá sem hyggjast hefja nám að nýju, kannski eftir langt hlé. Reiknað er með að kennt verð þrjú kvöld í viku. Grunnmenntaskólinn verður auglýstur nánar síðar.