Fræðslunet Suðurlands

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Fræðslunet Suðurlands

Próf í íslensku fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt hefjast 30. nóvember

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt hefjast næst hjá Námsmatsstofnun 30. nóvember næstkomandi fyrir þá sem hafa skráð sig í próf fyrir 10. nóvember. Þeir sem skrá sig eftir þann tíma eiga kost á því að taka próf vorið 2010. Prófin verða haldin í Reykjavík og utan höfuðborgarsvæðisins ef næg þátttaka fæst.

Íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt var haldið í fyrsta sinn í júní síðastliðnum en 1. janúar 2009 tók gildi það ákvæði í lögum um íslenskan ríkisborgararétt að umsækjandi skuli hafa staðist próf í íslensku. Alls tóku þá 206 umsækjendur próf sem haldið var bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur falið Námsmatsstofnun að sjá um framkvæmd prófanna og að mati stofnunarinnar tókst framkvæmdin í júní að flestu leyti vel.

Skráning í prófin hefst 15. september nk. og fer hún fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um hvar prófin fara fram, sýnishorn af verkefnum og prófkröfur. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550 2400. Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur.

Auglýsing um próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt (pdf-skjal)  (Sótt af vef Dóms- og mannréttindaráðuneytisins)

 

Laust á Joomla-námskeið

Vegna forfalla eru örfá sæti laus á námskeiðið "Vefsmíði með Joomla 1,5". Námskeiðið verður haldið 28. okt.- 11. nóvember einu sinni í viku eða á miðvikudögum. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja læra á hið vinsæla vefumsjónarkerfi Joomla sem nú er notað í fjölmörgum skólum, fyrirtækjum og stofnunum. Meðal annarra notar Fræðslunetið kerfið og FSu. Nær allir grunnskólar í Reykjavík nota kerfið. Námskeiðið hentar einnig þeim sem hafa umsjón með Joomla-vef og vilja auka þekkingu sína og færni. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér.
 

Starfsmenntaverðlaun 2009

Starfsmenntaráð auglýsir eftir tilnefningum/umsóknum um starfsmenntaverðlaun 2009. Starfsmenntaverðlaun eru veitt þeim aðilum sem vinna framúrskarandi starf í fræðslumálum og starfsmenntun. Veitt eru verðlaun  þremur flokkum. Sjá auglýsingu. Frestur til að senda inn tilnefningar/umsóknir eru til 3. nóvember n.k.
 

Hollusta úr baunum og grænmeti - örfá sæti laus

Á fimmtudaginn er fyrirhugað að halda námskeiðið Hollusta úr baunum og grænmeti, þar læra þátttakendur að elda hollan, ódýran og síðast en ekki síst góðan mat.  Síðasti dagur innritunar er í dag, mánudag 5. október. Á námskeiðinu kennir Guðríður Egilsdóttir matreiðslumeistari þátttakendum að elda hollusturétti af ýmsum toga og er lögð áhersla á að nota grænmeti og baunir sem er afar hagkvæmt og hollt hráefni. Þátttakendum er skipt í hópa þar sem hver hópur eldar a.m.k. einn rétt og í lokið er slegið upp veislu. Guðríður hefur lagt áherslu á að tileinka sér hollustumatargerð.
  • Kennari: Guðríður Egilsdóttir
  • Verð: 9.900
  • Dagur: fimmtudagur 8. október
  • Fjöldi: hámark 12 þátttakendur
 

Örfá sæti laus á Tölvur II

Enn eru örfá sæti laus á Tölvur II sem á að hefjast mánudaginn 12. október n.k. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið Tölvur I eða hafa dálitla reynslu af tölvunotkun en vilja öðlast aukið öryggi. Á námskeiðinu verður farið í skipulag skjala og vistun gagna, möppur og aðgerðir í Word 2007.  Einnig verður fjallað um notkun Netsins og tölvupósts, auk þess sem þátttakendur læra m.a. að samþætta notkun Word-ritvinnslunnar og Netsins. Verð fyrir námskeiðið er 20.900 og er rétt að minna á að starfsmentasjóðir verkalýðsfélaganna styrkja tölvunám sinna félaga. Innritun er í síma: 4808155.

 

 


Síða 9 af 18
husiklippt-small.jpg
Fræðslunet Suðurlands Íþróttahúsinu Iðu Tryggvagötu 25 800 Selfoss | Sími 480 8155 | Fax 480 8156
Höldum námskeið fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.

Opnunartímar

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 9-16 og föstudaga 9-15. Sími 480 8155

Náms- og starfsráðgjöf

Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Glaðheimum, Tryggvagötu 36. Sími 820 8155.

gladheimarsmkk

Háskólafélag Suðurlands

birta-lrtt

kvasir

logo menntatorg

facebook logo



© Fræðslunet Suðurlands | Tryggvagata 25 800 Selfoss | sími 4808155 | fax 4808156 | kennitala 641199 2579 | netfang: fraedslunet [hjá] fraedslunet.is | vefstjóri: steinunnosk [hjá] fraedslunet.is