Fræðslunet Suðurlands

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Fræðslunet Suðurlands

Siðferðilegar hliðar kreppunnar

pall skulaNú fer senn að líða að því að síðasti afmælisfyrirlestur Fræðslunetsins verði haldinn. Hingað kemur Páll Skúlason, heimspekingur og fyrrverandi háskólarektur, og ætlar að fjalla um siðferðilegar hliðar kreppunnar og áhrif hennar á samfélagið. Fyrirlesturinn verður haldinn í Iðu á Selfossi þriðjudaginn 17. nóvember kl. 20-21.30.
Það eru allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. Vinsamlegast hafið samband við Fræðslunetið í síma 4808155 ef þið hyggist sækja fyrirlesturinn.
 

Fleiri náms- og starfsráðgjafar virkjaðir í þágu atvinnuleitenda

fundur vmst small

Inga Dóra Halldórsdóttir formaður Kvasis, Gissur Pétursson framkvæmdastjóri VMST og Ingibjörg Elsa Guðmundsdótir framkvæmdastjóri FA

Sl.  miðvikudag 28. október var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, KVASIS, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva  og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins  um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur.  Á vegum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva starfa náms- og starfsráðgjafar, sem munu með þessum samningi  taka þátt í að ná til atvinnuleitenda  sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hvetja þá til virkni.

Atvinnuleysi er nú yfir 7% á landsmælikvarða, en mismunandi eftir svæðum. Mest er atvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Þörfin fyrir náms- og starfsráðgjöf hefur aukist mjög mikið án þess að fjárveitingar  hafi aukist í sama mæli  til að mæta ráðgjafaþörfinni á vegum Vinnumálastofnunar.

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur á grundvelli samnings ASÍ og SA við menntamálaráðuneytið greitt fyrir náms- og starfsráðgjöf hjá símenntunarmiðstöðvum. Umfang þess starfs eru um 7 föst stöðugildi náms- og starfsráðgjafa á 10 fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum um allt land . Auk þess hefur verið svigrúm til að greiða fyrir meiri vinnu námsráðgjafa eftir þörfum á hverju svæði fyrir sig.  Það má því reikna með að sú aukning sem verður í náms- og starfsráðgjöf með þessum samningi sé  á bilinu 7-9 þúsund einstaklingsviðtöl á ársgrundvelli. Það er góð viðbót við þá ráðgjafaþjónustu sem Vinnumálastofnun veitir en á þjónustuskrifstofum hennar starfa um 20 ráðgjafar sem geta áorkað um 20 – 25 þúsund einstaklingsviðtölum á ári.

Markmiðið með samningnum er fyrst og fremst að ná til þess stóra hóps sem er án framhaldsskólamenntunar og hefur verið lengst á atvinnuleysisskrá. Þeir sem hafa eingöngu grunnskólapróf, sem síðustu prófgráðu eru um 30% fólks á vinnumarkaði, en yfir 50% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Sami hópur er einnig stærstur af þeim sem eru langtímaatvinnulausir .

Það er þekkt staðreynd að langtímaatvinnuleysi getur haft varanleg áhrif á andlegt ástand og atvinnuhæfni fólks . Það er því sérstaklega  mikilvægt að hægt sé að grípa inn í þá þróun fyrr en síðar.

Atvinnuleitendur geta á grundvelli þessa samnings átt von á að vera kallaðir til skylduviðtals á vegum fræðslu- og símenntunarmiðstöðvanna, en ekki eingöngu hjá Vinnumálastofnun  eins og áður hefur verið.

 

Kynbundið ofbeldi, vanræksla og ill meðferð

Kynbundið ofbeldi, vanræksla og ill meðferð (10 ECTS einingar) - kennt á vormisseri 2010 frá Háskólanum á Akureyri
- einnig í fjarkennslu til Ísafjarðar, Egilsstaða, Selfoss og Hafnarfjarðar
Námið er 48 klst. og öllum opið en er kennt á meistarastigi. Þeir sem vilja fá það metið inn í meistaranám skulu skila verkefnum og mæta öðrum þeim kröfum sem slíkt nám krefst. Námið hentar þeim sem starfa við heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, skólakerfið, löggæslu, dómskerfið og sjálfstætt starfandi aðilum sem vinna með fólki, einnig þeim sem hafa áhuga á að starfa á þeim vettvangi. 
Kennd verða fjögur lotubundin námskeið, 12 kennslustundir hvert: Sjá námslýsingu

 

Excel fyrir byrjendur, örfá pláss laus

Námskeiðið Excel fyrir byrjendur verður haldið á þriðjudögum 10. -24. nóvember ef næg þátttaka fæst. Enn eru örfá sæti laus.

Á námskeiðinu kynnast þátttakendur uppbyggingu töflureikna og læra að beita einföldum reiknireglum. Kennt verður að nota einfaldar formúlur, innbyggð reikniföll og hvernig á að útlitsmóta töflur og sníða reiti. Einnig er kennt að útbúa einföld myndrit. Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að geta haft mikil og hagnýt not af þessu öfluga forriti. Grunnþekking á tölvum er nauðsynleg. Námskeiðið hentar fyrir alla þá sem vilja nýta sér Excel til ýmissa hluta t.d. áætlanagerðar, heimilisbókhalds nú eða búa til prjónamynstur.

mynsturÞað er auðvelt og fljótlegt að gera mynstur með Excel.

  • Kennari: Leifur Viðarsson, tölvukennari
  • Verð: 15.900.-
  • Lengd: 12 stundir
  • Dagar: Þriðjudagar
 

Þrjú ný námskeið í fjarnámi frá Háskólanum á Bifröst

Símenntun Háskólans á Bifröst býður upp á 3 áhugverð námskeið í fjarnámi á næstunni.

Ef þið smellið á heiti námskeiðanna þá opnast síða með nánari upplýsingum.

Markaðsfræði – 6 vikna fjarnám

Hefst 2. nóvember, vinnuhelgi á Bifröst 13.-14. nóv.

Kennari: Magnús Bjarni Baldursson, formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA)

Verð kr. 37.500, gisting og fæði á vinnuhelgi innifalið.

Tímastjórnun og tæknilausnir

Hefst 3. nóvember og stendur yfir í 10 daga.

Kennari:  Jón Freyr Jóhannsson, aðjúnkt við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst

Excel fyrir byrjendur

Hefst 16. nóvember og stendur til 11. desember.

Kennari:  Jón Freyr Jóhannsson, aðjúnkt við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst

Nánari upplýsingar um námskeið á vegum Símenntunar Háskólans á Bifröst má finna á heimasíðu skólans:  http://www.bifrost.is/islenska/namsleidir/simenntun/

 


Síða 8 af 18
husiklippt-small.jpg
Fræðslunet Suðurlands Íþróttahúsinu Iðu Tryggvagötu 25 800 Selfoss | Sími 480 8155 | Fax 480 8156
Höldum námskeið fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.

Opnunartímar

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 9-16 og föstudaga 9-15. Sími 480 8155

Náms- og starfsráðgjöf

Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Glaðheimum, Tryggvagötu 36. Sími 820 8155.

gladheimarsmkk

Háskólafélag Suðurlands

birta-lrtt

kvasir

logo menntatorg

facebook logo



© Fræðslunet Suðurlands | Tryggvagata 25 800 Selfoss | sími 4808155 | fax 4808156 | kennitala 641199 2579 | netfang: fraedslunet [hjá] fraedslunet.is | vefstjóri: steinunnosk [hjá] fraedslunet.is