Á fimmtudaginn kl. 17 verður kynningarfundur hér í Iðu á þremur námsleiðum FA, Skrefi til sjálfshjálpar, Grunnmenntaskólanum og Námi og þjálfun í almennum bóklegum greinum.
Hvað og fyrir hvern eru þessar námsleiðir?
Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun
er fyrir þá sem eiga í erfiðleikum með lestur og/eða stafsetningu og vilja styrkja sig og bæta á þessu sviði. Það er fyrir fullorðna einstaklinga og hentar einnig þeim sem hafa hug á að fara í frekara nám í framtíðinni. Námið kostar kr. 11.000 og er 60 stunda langt. Það má meta til allt að fimm einingum á framhaldsskólastigi. Kennt verður bæði á dagvinnutíma og seinni partinn eða á kvöldin ef næg þátttaka fæst.
Grunnmenntaskólinn
er fyrir fullorðna einstaklinga sem hafa hug á að hefja nám að nýju en hafa ekki farið í framhaldsskóla eða hafa hafið nám í framhaldsskóla en ekki lokið því. Í náminu læra námsmenn að læra, fá sjálfsstyrkingu og fá kennslu í íslensku, ensku, stærðfræði og upplýsingatækni. Námið er 300 stunda langt og má meta til allt að 24 einingum í framhaldsskóla. Það kostar 54.000 og verður kennt á dagvinnutíma. Hefst 18. janúar.
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum
Námið er ætlað fullorðnum einstaklingum sem hafa lokið Grunnmenntaskólanum eða lokið einhverjum áföngum í framhaldsskóla. Hægt er að fá einstaka áfanga metna. Námið samanstendur af íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku. Námið er 300 stunda langt og má meta til allt að 24 einingum í framhaldsskóla. Það kostar 54.000 og verður kennt á dagvinnutíma. Hefst 18. janúar.
Hægt er að nálgast námsvísa á http://www.frae.is