Fræðslunet Suðurlands

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Fræðslunet Suðurlands

Birta og Fræðslunetið í samvinnu

birtaNú er hafið starfsendurhæfingarnámskeið hjá Birtu, starfsendurhæfingu Suðurlands. Námskeiðið fer að mestu fram í húsnæði Fræðslunetsins og er haldið  í samvinnu við Fræðslunetið. Fjórtán manna hópur hóf nám í gær en líklega á eftir að fjölga aðeins í hópnum. Markhópur Birtu eru einstklingar með örorkumat eða endurhæfingarlífeyri, þeir sem fá greiðslur frá lífeyrissjóðum, eru atvinnuleitendur eða fá fjárhagslega aðstoð frá sveitarfélögum. Í starfsendurhæfingunni er tekið heildstætt á vanda hvers þátttakanda og markmiðið er að viðkomandi geti aftur hafið atvinnuþátttöku. Námskeiðið sem nú er hafið mun standa í 14 vikur og lýkur um miðjan maí. Það verður boðið uppá fjölbreytt viðfangsefni í endurhæfingunni, s.s. fjármálafræðslu, upplýsingatækni, listsköpun og margs konar kynningar og fræðsla.

 

Gerð styrkumsókna - ókeypis námskeið

Námskeiðið Gerð styrkumsókna sem halda átti á fimmtudaginn  verður haldið í kvöld mánudag. Allir velkomnir.

Mánudaginn 1. mars kl. 20 verður haldið námskeið í boði Menningarráðs Suðurlands og Fræðslunetsins sem kallast ,,Gerð styrkumsókna". Námskeiðið verður haldið í Iðu og er öllum heimill aðgangur. Kennari er Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands.

Lýsing:

Námskeiðið er sérstaklega hugsað fyrir þá sem hyggjast sækja um styrki úr hinum  ýmsu sjóðum.  Á námskeiðinu fá þátttakendur leiðbeiningar um hvernig æskilegt er að byggja umsóknir upp og ganga frá þeim, hvaða fylgiskjöl og útreikningar þurfa að fylgja umsóknum og fl. Einnig fá þátttakendur kynningu á nokkrum sjóðum sem veita styrki til menningarstarfs. Þeir sem hafa hug á að sækja um styrki til Menningarráðs Suðurlands er sérstaklega bent á að nýta tækifærið og sækja þetta námskeið.

 

 

Rannsókn á lestrarkennslu og verkefnið „Hófar og hæfileikar“ hlutu styrk vísinda- og rannsóknarsjóðs

menntaverlaun

Frá afhendingu styrks Vísindasjóðsins

Árleg úthlutun styrks úr Vísinda- og rannsóknarsjóði Fræðslunets Suðurlands fór fram á hátíðarfundi Fræðslunetsins sem haldinn var föstudaginn 12. febrúar sl. Tvö verkefni hlutu styrkinn að þessu sinni. Meistaraprófsverkefni Guðrúnar Þórönnu Jónsdóttur  sem fjallar um tengsl og samstarf leik- og grunnskóla í Árnessýslu með tilliti til lestrarnáms ungra barna. Markmið verkefnisins er að bæta lestrarnám nemenda á yngsta stigi og að fagfólk í leik- og grunnskólum verði betur meðvitað um samfellu í námi barnanna og þar sem mikilvægi samstarfs leik- og grunnskóla. Guðrún Þóranna fékk 500.000 kr. styrk til verksins. Hún er nemandi á menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Í öðru lagi fékk B.S. verkefni Sigurðar Torfa Sigurðssonar „Hófar og hæfileikar“ 300.000 kr. styrk. Verkefnið felst í því að bera saman hófa og járningar hrossa sem mæta til kynbótadóms og hófa og járningar almennra reið- eða keppnishesta. Tilgangurinn er m.a. að skoða hvort form, lengd og halli hófa og kjúku hafi áhrif á ganghæfileika íslenska hestsins. Sigurður Torfi er nemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Það var forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson sem afhenti styrkinn að venju en þetta er áttunda árið sem styrkur er veittur úr sjóðnum. Alls bárust fimm umsóknir að þessu sinni en það eru þó nokkuð færri umsóknir en undanfarin ár. Það eru ýmis fyrirtæki, sveitarfélög, stofnanir og félagasamtök á Suðurlandi sem eru bakhjarlar sjóðsins.

Við sama tækifæri voru Menntaverðlaun Suðurland afhent. En það var Flúðaskóli sem fékk þau verðlaun fyrir verkefnið Lesið í skóginn. Þetta er í annað sinn sem Menntaverðlaun Suðurlands eru veitt en það var Fræðslunetið sem fékk þau verðlaun síðast.

 

Hátíðarfundur Fræðslunetsins

Hátíðarfundur Fræðslunets Suðurlands verður haldinn í dag kl. 17. Þar mun forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson afhenda styrk vísinda- og rannsóknarsjóðs Fræðslunetsins. Styrkurinn er veittur árlega og geta þeir sem stunda nám á háskólastigi sótt um styrk til gerðar lokaverkefna. Skilyrði er að verkefni tengist Suðurlandi með einhverjum hætti. Hægt er að skoða hverjir hafa hlotið styrk vísindasjóðsins og hvaða verkefni, frá því að hann var stofnaður árið 2002 (skoða).

Menntaverðlaun Suðurlands

Á hátíðarfundinum verða einnig afhent Menntaverðlaun Suðurlands. Það er mennta- og menningarmálanefnd SASS sem veitir þessi verðlaun. Verðlaunin voru afhent í fyrsta skipti haustið 2008 en þá hlaut Fræðslunetið verðlaunin. Nú eru verðlaunin afhent í annað sinn og samkvæmt vefsíðu Hrunamannahrepps er það Flúðaskóli sem hlýtur verðlaunin að þessu sinni.

 

Jákvæð sálfræði höfðar til Klausturbúa

Námskeiðið Jákvæð sálfræði sem haldið verður næstu tvo fimmtudaga virðist höfða sérstaklega til Klausturbúa en þar verður mjög góð þátttaka. Námskeiðið verður sent þangað í fjarfundi og þess vegna opnast möguleikar á að senda einnig á aðra staði á Suðurlandi, s.s. Vík, Hvolsvöll og Flúðir. Þeir sem hafa áhuga á námskeiðinu geta innritað sig næstu daga í síma 4808155. Skoða auglýsingu um námskeiðið.

 


Síða 5 af 18
husiklippt-small.jpg
Fræðslunet Suðurlands Íþróttahúsinu Iðu Tryggvagötu 25 800 Selfoss | Sími 480 8155 | Fax 480 8156
Höldum námskeið fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.

Opnunartímar

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 9-16 og föstudaga 9-15. Sími 480 8155

Náms- og starfsráðgjöf

Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Glaðheimum, Tryggvagötu 36. Sími 820 8155.

gladheimarsmkk

Háskólafélag Suðurlands

birta-lrtt

kvasir

logo menntatorg

facebook logo



© Fræðslunet Suðurlands | Tryggvagata 25 800 Selfoss | sími 4808155 | fax 4808156 | kennitala 641199 2579 | netfang: fraedslunet [hjá] fraedslunet.is | vefstjóri: steinunnosk [hjá] fraedslunet.is