Fræðslunet Suðurlands

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Fræðslunet Suðurlands

Hugarkort: Verkfæri kennarans - Námskeið í fjarfundi

Námskeiðið er eingöngu ætlað þátttakendum í fjarfundi. Skráning fer fram á Fræðslunetinu og hjá Endurmenntun í síma 525 - 4444.

Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta:

  • Eigin undirbúning fyrir kennslu
  • Skipulagningu kennslu
  • Samvinnu og aðstoð við nemendur
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

Þátttakendur munu læra að nota hugarkort sem skipulagningarverkfæri og þannig auðvelda mörg verkefni sem snúa að skipulagningu kennslunnar. Hugarkort geta auðveldað yfirsýn yfir kennslu og verkefni heils misseris, jafnt sem einnar kennslustundar.
Þar að auki munu þátttakendur læra að nýta hugarkort til að kynna og útskýra námsefnið fyrir nemendum sínum. Þá munu þátttakendur kanna notkun hugarkorta til þess að útbúa námsefni fyrir nemendur sína, hvort sem það er gefið út - eða því dreift á pappír eða á vefnum.

Að loknu námskeiði er stefnt að þvi að þátttakendur geti nýtt hugarkort til að safna upplýsingum og raða þeim við undirbúning kennslu.

Kennsla fer fram með stuttum fyrirlestrum, umræðum, einstaklings- og hópverkefnum.

Kennsla / umsjón:

Hróbjartur Árnason, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Hvenær:

Mið. 20. okt. kl. 12:00 -16:00

Verð: 13.500 kr.

 

 

Námskeiði um safnhaugagerði frestað

Vegna veikinda er námskeiðinu um safnhaugagerð sem halda á miðvikudaginn 28. apríl kl. 20 frestað um eina viku. Námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 5. maí n.k. kl. 20. Enn eru laus nokkur sæti á námskeiðið. Sjá lýsingu.
 

Útskrift af Fagnámskeiði II

vef stor

Þátttakendur á námskeiðinu ásamt Írisi Þórðardóttur sem kennir siðfræði. Skoða fleiri myndir.

Þann 19. apríl sl. voru 10 nemendur útskrifaðir af Fagnámskeiði II, fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Á námskeiðinu sem er 60 stunda langt læra þátttakendur ýmislegt varðandi umönnun skjólstæðinga sinna og fleiri þætti er snerta starfið, s,s. skyndihjálp, líkamsbeitingu og vinnustöðu, almenna sálfræði og siðfræði og margt fleira. Fræðslunetið hefur á undanförnum misserum haldið fjölmörg fagnámskeið og hefur nú stór hópur þeirra sem vinna á þessu sviði lokið þessu námi. Fagnámskeiðin eru tvö og eru samtals 120 tímar.

 

Undirbúningur undir haustönn 2010 hafinn

Þessa dagana er starfsfólk Fræðslunetsins farið að huga að undirbúningi haustannar 2010. Undirbúningur felst m.a. í því að vekja til lífsins námskeið sem haldin eru á hverju ári og setja þau á vefinn, er hér um að ræða t.d. tölvunámskeið og tungumálanámskeið. Nokkur þessara námskeiða eru þegar kominn á vefinn okkar og því getur fólk þegar farið að skoða, spá og spekúlera og taka frá daga næsta haust. Kíkið á framboðið hér.

Einnig felst undirbúningur í því að leita góðra hugmynda um ný námskeið og eru þeir sem hafa góðar hugmyndir eða áhuga fyrir einhverju tilteknu hvattir til að hafa samband við okkur í síma 480 8155 eða með tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 

Leiðavísir um Sturlungu - til boða í fjarfundi á Suðurlandi

Ætlað þeim sem langar að lesa Sturlungu en hafa aldrei getað brotist inn í hana. Vegna mikilla vinsælda er Einar Kárason nú kominn aftur til að segja sögur upp úr Sturlungu og kynna þannig helstu atburði og lykilpersónur sögunnar um leið og hann dregur upp leiðarvísi inn í söguna.

Leiðin inn í Sturlungu er torsóttari og villugjarnari en inn í flestar okkar helstu fornsögur. En þeim sem þangað komast opnast stórbrotinn og óviðjafnanlegur heimur með mögnuðum sögupersónum og dramatískum atburðum. Á þremur kvöldum endursegir Einar Kárason með eigin orðum helstu viðburði og leikendur á sviði 13. aldar, með aðaláherslu á Örlygsstaðabardaga og löngum aðdraganda hans, Flóabardaga og að lokum Flugumýrarabrennu. Gott tækifæri gefst til umræðna og leiðbeint verður inn um bakdyr sem opnast að veröld þessarar mögnuðu bókar.

Kennsla / umsjón: Einar Kárason, rithöfundur

Hvenær: Þri. 13., 20. og 27. apr. kl. 20:15 - 22:15 (3x)

Verð: 9.800 kr.

Allar nánari upplýsingar hjá Endurmenntun Háskóla Íslands

 


Síða 3 af 18
husiklippt-small.jpg
Fræðslunet Suðurlands Íþróttahúsinu Iðu Tryggvagötu 25 800 Selfoss | Sími 480 8155 | Fax 480 8156
Höldum námskeið fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.

Opnunartímar

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 9-16 og föstudaga 9-15. Sími 480 8155

Náms- og starfsráðgjöf

Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Glaðheimum, Tryggvagötu 36. Sími 820 8155.

gladheimarsmkk

Háskólafélag Suðurlands

birta-lrtt

kvasir

logo menntatorg

facebook logo



© Fræðslunet Suðurlands | Tryggvagata 25 800 Selfoss | sími 4808155 | fax 4808156 | kennitala 641199 2579 | netfang: fraedslunet [hjá] fraedslunet.is | vefstjóri: steinunnosk [hjá] fraedslunet.is